Nokia Image Frame SU 7 - Inngangur

background image

Inngangur

Nokia Image Frame SU-7 er aukavara sem gerir notandanum kleift að skoða
stafrænar myndir sem teknar eru eða tekið við í IrDA-samhæfum Nokia-síma eða
öðrum samhæfum tækjum. Hægt er að tengja Nokia Image Frame við tækin með
innrauða (IR) tenginu. Ef SIM-kort er sett í Nokia Image Frame er einnig hægt að
taka við nýjum myndum í MMS-boðum.

Hægt er að setja Nokia Image Frame á borð og skoða hverja mynd fyrir sig eða sem
skyggnusýningu. Nokia Image Frame er selt með þremur myndum í og auðvelt er
að bæta við nýjum myndum úr samhæfum síma eða einkatölvu og eyða eldri
myndum.

Lesa skal þessa notendahandbók vandlega áður en Nokia Image Frame er notað.